Meðmæli viðskiptavina

 

“Kristján er sá besti sem ég hef kynnst í sínu fagi, ég hef starfað með mörgum fasteignaljósmyndurum og Kristján stendur hátt yfir öðrum. Vinnubrögðin og augað fyrir góðri mynd er á allt öðrum mælikvarða en hjá öðrum.”

— Hlynur Bjarnason, LIND Fasteignasala

 

“Ég hef unnið með Kristjáni í nokkra mánuði og alltaf gengið frábærlega. Hann hefur gott auga og gefur sér tíma til þess að ná eins góðum myndum og völ er á.
Fyrsta eignin sem Kristján myndaði fyrir mig hafði verið óseld í rúma tvo mánuði en seldist á fyrstu viku eftir að ég fékk Kristján til að mynda hana upp á nýtt.
Topp meðmæli.”

— Unnar Kjartansson, Eignamiðlun

 

“Kristján byrjaði að taka myndir fyrir mig í maí 2020. Eftir að ég kynntist honum hef ég eingöngu notað hann í myndatökur fyrir mínar eignir. Ég legg höfuðáherslu í minni nálgun fyrir söluna að myndirnar séu upp á 10 og skilar Kristján hjá Eignamyndböndum því í hvert skipti. Frábær þjónustulund og afgreiðir hlutina fljótt og vel. Mæli hiklaust með.”

-Hreiðar Levý, Eignamiðlun