Sviðsetning tómra íbúða

Oft getur verið óspennandi að skoða ljósmyndir af tómum eignum og erfitt að ímynda sér hvernig þær myndu líta út með fallegum húsgögnum. Með tölvugrafíkinni er hægt að setja inn húsgögn, gólfefni o.fl. og er munurinn gríðarlega mikill. Eignin verður mun sölulegri og eru mörg dæmi um að eignir hafi staðið á sölu í marga mánuði með ljósmyndum af tómri eign en selst mjög fljótlega eftir að búið var að bæta við húsgögnum, gólfefnum o.fl.
Þessi þjónusta á mjög vel við nýbyggingar.